...fríka út.
Ég er kominn með æði...ég er alltaf með eitthvað æði. Ég fæ æði fyrir einhverju, með jöfnu milli bili og nauðga því svo að ég verða að taka smá pásu...
Núna er tónlistaræðið enn og aftur byrjað að gera vart við sig. Ég var að taka iPodinn fram úr skápnum sem hann hefur verið í geymslu í síðastliðið árið og núna er ég að hlaða hann...
Mannakorn er æðisleg hljómsveit, en þeir fluttu þetta yndislega íslenska lag á sínum tíma:
GARÚN
(Magnús Eiríksson)
Hratt er riðið heim um hjarn,
torfbærinn í tunglsljósinu klúkir.
Draugalegur, dökkklæddur
Myrkárdjákni á hesti sínum húkir.
Tunglið hægt um himinn líður,
dauður maður hesti ríður,
Garún, Garún.
Höggin falla á dyrnar senn,
kominn er ég til þín enn, ó Garún.
Öll mín ást í lífinu sem ég elskaði og tilbað
alltaf var hún.
Komdu með mér út að ríða,
lengi hef ég þurft að bíða,
Garún, Garún.
Tvímennt er úr hlaðinu,
út að hálfu vaðinu smeyk er hún.
Djákninn ríður ástarsjúkur,
holar tóftir, berar kjúkur, Garún.
Tunglið hægt um himinn líður,
dauður maður hesti ríður,
Garún, Garún.
Góða nótt...
laugardagur, maí 10, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

3 skoðanir skrifaðar:
Ég tek oft einhvern vegin svona æði, disney mynda æði, og hlusta á ýmiskonar hljómsveitir, Queen er núna æðið mitt:D
Ohh Ísak, veist ekki hvað ég er mikið sammála þér, mannakorn er frábær hljómsveit! Tvöfaldi safndiskurinn Braggablús sem eru bara lög eftir Magnús Eiríksson er bara einn af mínum uppáhaldsdiskum! Hann er æææðislegur! Verður að tékka á honum ;)
úpps haha þetta átti ekki að vera nafnlaust, þetta er ég Halla, fréttakona með meiru og öðru nafni stórsöngkonan Andrea Gylfadóttir ;)
Sendu inn athugasemd