þriðjudagur, maí 27, 2008

Ekki fyrir viðkvæma

Helvítis djöfulsins andskotans rassa-, skíta-, ógeðs vesen

Hvað haldiði að hafi skeð...

HJÓLIÐ MITT VAR EYÐILAGT!!!!!

Mig langar að fara að gráta

Pirringur dauðans. Ég keypti þetta hjól fyrir verðlaunin frá Ísfirðingafélaginu sem ég fékk í útskriftinni í fyrra. Vá hvað ég er fúll. Ég geymdi það alltaf á brúnni fyrir ofan Hagkaup svo ég þyrfti ekki að fara geðveikt að taka langan krók til að komast í vinnuna, og ég geymdi það á stað þar sem að ég gæti séð það frá kaffistofunni og reykingafólkið í Hagkaup sá það líka frá staðnum þar sem þau reykja.

En núna hefur einhver helv**** hálfviti þurft endilega að fullnægja eyðileggingar þörf sinni og auðvitað var það ég sem lenti fyrir barðinu á því. Sá sem gerði þetta (eða sú) hefur greinilega hjólað eða sparkað í hjólið af fullum krafti því að skiptingin sem skiptir um gír var beygluð, en samt var hún nær handriðinu...

Það þýðir víst lítið að velta sér upp úr þessu, en maður getur svo sannarlega verið gáfaður eftir á :S

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ekki gráta Ísak minn....borða sukkulaði-keks og hugsa, hvað það er gott, að hálvitinn tók hjólið og ekki fótur þínir. :)

Ísak minn. ég sakna Ísafjörður og gamla dagar í Gamla Apótekinu :( hvað geri ég þá?