sunnudagur, febrúar 10, 2008

Gott kvöld -óður til Maju

Hamarshöggin dynja hér á heimili fjölskyldu minnar við Sogaveginn. Nýjir íbúar í kjallaranum að gera íbúðina klára til innflutnings, og pabbi að laga þvottahúsið niðri, næstum búinn reyndar.

Ég veit ekki, er þriggja orða setning sem ég spyr sjálfan mig svo oft. Hvaða braut vill ég fara í lífinu. Eina stundina langar mig til að verða læknir og bjarga mannslífum. Aðra að verða kennari og bjarga vitlausum unglingum frá ræsinu. Stundum langar mig svo að verða stjórnmálamaður og reyna að bjarga heiminum en samt þá fjarlægist sá draumur alltaf fljótt frá mér því að atvinnuöryggið er lítið sem ekkert.

Helst myndi ég vilja gera allt. Mig langar að vera læknir, kennari, stjórnmálamaður, fréttamaður, námsmaður, starfsmaður, verslunarstjóri, byggingaverkfræðingur. Samt kemur einhvern veginn ekki til greina að vinna úti vinnu.

Mig langar að læra svo margt. Mig langar að taka allar brautir í MS. Ég get ekki valið. Lífið er valkvíði. Maður verður að taka ákvörðun, stundum veðjar maður rétt, stundum ekki og þá verður maður bara að taka afleiðingunum -því miður.

Þangað til næst...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég veit hvað þú gerir:D Þú gerir bara ekki neitt, þú skalt bara vinna við ekkert, svo einfalt:)
En það er alltaf svo gaman að lesa bloggin þín^^
-Maja

Nafnlaus sagði...

Bíddu...hamarshögg....ég hef ekki heyrt eitt einasta! ég skil ekki hvað þú ert að tala um. Það hlýtur að vera e-ð verr hljóðeinangrað í þínu herbergi en mínu!!

Ha ha ha ha...eigum við e-ð að ræða síðasta mánudagskvöld þegar kallskrattinn kom kl. 22 og var ekki hættur að berja kl. 03!!!!

--Sara

Ísak Pálmason sagði...

ég held samt sara að mitt herbergi sé betur einangrað því ég svaf alveg á mánudaginn :D

Sandra sagði...

hehe.. en þig langar allavegana til að "bjarga".. það eitt er víst ;)

geturu ekki bara lært það?