,,As you can see, there is a sea all around this island."
Ég skrapp í bíó á föstudagskvöldið síðastliðið. Ég skellti mér á nýjasta meistaraverk Baltasars Kormáks, Brúðgumann.Þegar litið er til baka eru tveir karakterar sem koma sterkt upp úr, Milla leikin af Ilmi Kristjánsdóttur og Börkur leikinn af Vestfirðingnum Þresti Leó Gunnarssyni.
Í heildina litið stóðu allir sig vel og myndin er falleg og skemmtileg og hefur allt það sem góð kvikmynd á að hafa, eins og vel flestar íslenskar myndir. Enda trúi ég því að íslenskir kvikmyndagerðarmenn séu með þeim bestu í heimi, þó svo að alheimurinn hafi enn ekki uppgötvað þá að fullu.
Annars þá langar mig í sumarið...hef allt í einu óstöðvandi löngun í að fara út í móa berfættur, leggjast niður og borða hámenningarlegt Pik nik. Ég ætla því um leið og færi gefst að fara út í sveit og láta þennan draum minn rætast...


2 ummæli:
Mig langar svo að sjá þessa mynd:)
Og þú ert ekki sá eini sem langar í sumarið. Ég er komin með skólaleið og mig langar að fá sól og engan snjó og frí, útilegur og það sem fylgir bara sumarinu.
Heyrumst;)
Ahhh... get ekki beðið eftir sumrinu <3
Fara vestur og hitta allt fólkið :)
Skrifa ummæli