Ertu á fullu í prófum? Áttu erfitt með að halda einbeitingunni við lesturinn? Leikjanet í samstarfi við Í. Pálmason ltd. kynnir nýjan tölvuleik sem hjálpar þér við að ná einbeitingunni aftur til að geta lesið nokkrar blaðsíður í viðbót.
Já, eða nei annars...það er ekki sniðugt að fara í bubbles þegar maður er í prófum...ef maður byrjar þá er maður í honum alveg þangað til að maður vinnur hann...allavega ég :S Þetta er svona alveg eins og myspace...maður kíkir á einn prófíl, og svo man maður ekki eftir sjálfum sér fyrr en eftir hálftíma...hræðilegt :c
Fyrsta prófið er loksins búið :D Líffræðin...tók hana með stæl, eða vonandi yfir 7 :S

1 ummæli:
Ef ég þekki þig rétt Ísak þá hefuru örugglega fengið yfir 7 í prófinu, og gangi þér vel í hinum prófunum;)
Og ég held að tölvan sé hreinlega bara ekki góð aðferð til þess að halda einbetingunni við að lesa fyrir próf:D
En við heyrumst sem fyrst naggur;)
-Maja
Skrifa ummæli