föstudagur, september 07, 2007

jólin eru á næsta LEYTI

Vá hvað ég er stórborgarlegur :D ég fór í fyrsta skiptið í gær í strætó með nýja strætókortinu mínu :D
En nóg um það. Í dag hljómuðu í eyrum Ísfirðinga fréttir um að vinir okkar og frændur í danska bænum Hróars-keldu hefðu slitið vinabæjar sambandi við Ísafjörð, hvað verður um jólatréið sem þeir hafa alltaf gefið okkur, verður ekkert jólatré kannski :S Hvað verður þá um torgsöluna, niðurtalninguna og kakó og lummur úr tónlistarfélagsgámnum.
Ég ætla rétt að vona það að þessi skemmtilegi siður verði ekki lagður niður, þrátt fyrir að jólatréið verði ekki danskt þessi jólin :(
Ég hef því ákveðið að taka mig til og auglýsi því eftir fyrir hönd Ísfirðinga eftir bæ sem vill gefa okkur jólatré svo við getum haldið áfram þessum gamla sið.

Skemmtileg stemming...ekki satt?

3 ummæli:

Sandra sagði...

Hehe já góður Ísak.. ég skal styðja þig ;)

En gaman að kíkja á bloggið þitt, var ekki búin að sjá það áður. Og já, moggablogg er alveg örugglega fín hugmynd :)

Klem frá Oslo, sjáumst í nóvember sæti frændi ;)

Nafnlaus sagði...

Æ Æ verslings iso skiptir mig samt ekki miklu mali (nama að eg flytji aftur þangað)

Kv.Hermann Karl i Hafno

Sandra sagði...

Koma svo Ísak..

Engan vegin að standa þig hérna!!

;)